Gott er að sækja Úthlíð heim og njóta dvalarinnar í einstaklega gróðursælu og fallegu umhverfi. Í Úthlíð eru 15 orlofshús til leigu, til lengri eða skemmri tíma.
Bókanir eru á helstu bókunarsíðum og er einfalt að finna lausa daga fyrir bústaðarferðina þar.
Í Réttinni er hægt að fá góðgæti af matseðli ásamt heitum og köldum drykkjum. Í Réttinni er jafnframt rekin lítil verslun þar sem reynt er að mæta þörfum þeirra sem gleyma stundum heima hinu og þessu, eins og tannbustanum, öllu til ræstinga, einnig er hægt að fá mjólkurvörur, brauð kaffi, kex, eitthvað að nammi og að sjálfsögðu Kjörís.
Í Úthlíð er hægt að kaupa gas á grillið, rafhlöðu í reykskynjarann og sitthvað feira - verið ófeimin við að spyrja.
Komið við og gæðið ykkur á hinu víðfræga Eldfjalli