Rómantískur og fallegur bústaður fyrir pör eða einstaklinga sem vilja gera sér dagamun, eða eru í brúðkaupsferð.
Lýsing:
Eitt svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi
Eldhús með eldavél, kæliskáp, örbylgjuofni, bakarofni, kaffikönnu, hitakönnu, brauðrist og borðbúnaði fyrir 4.
Stofa með sófasetti og sjónvarpstæki (RÚV) og útvarpi.
Frítt net
Baðherbergi með sturtu
Á verönd er gasgrill, borð og stólar til að borða úti og sýn um allt Suðurland til Heklu og Eyjafjallajökuls og norðurljósa ef vel viðrar að vetrarlagi.
Heiti potturinn er yfirbyggður sem gerir hann mjög notalegan.